Lindexmótið fer fram um helgina

Það verður mikið um að vera á Ásvöllum og í Strandgötu um helgina þegar að Lindexmótið í handbolta fer fram en um er að ræða æfingarmót fyir 5.flokk karla og kvenna. Mótið er haldið í samstarfi við Lindex sem að leikið verður frá kl. 16:00 á föstudeginum til kl. 14:00 á sunnudeginum á 3 völlum en um 30 lið taka þátt í mótinu í ár. Það má því búast við lífi og fjöri um helgina og því um að gera fyrir alla Hafnfirðinga að fjölmenna á Ásvelli og Strandgötu um helgina. Nánari upplýsingar um mótið má nálgast á https://www.facebook.com/Lindexmótið-%C3%AD-Handbolta-509951746024856/