Lengjubikarinn í Ásvöllum í kvöld og á morgun

Meistaraflokkar Hauka í knattspyrnu verða í eldlínunni í Lengjubikarnum í kvöld, fimmtudag, og á morgun, föstudag, á Ásvöllum.

Meistaraflokkur karla mætir Víking R. í riðli 1 í A deild Lengjubikars karla en eftir fjóra leiki eru okkar strákar með 2 stig en Víkingar með 6 stig. Leikurinn hefst kl. 19:00.

Meistaraflokkur kvenna mætir liði Selfoss í B deild Lengjubikars kvenna en eftir þrjá leiki eru okkar stúlkur með 3 stig eftir 3 leiki en Selfoss er án stiga eftir 4 leiki. Leikurinn hefst kl. 19:00.

Stuðningsfólk Hauka er hvatt til að mæta í stúkuna á Ásvöllum og hvetja okkar lið til sigurs þar sem þau búa sig undir átök sumarsins í Pepsí og Inkasso deildunum.

Áfram Haukar!

Haukar-Meistaraflokkar-Sameiginlegar myndir