Velkomin á nýjan skráningarvef Hauka
Byrjað var á að nota þetta nýja skráningarkerfi í íþróttaskólanum í sumar. Gekk það vonum framan og var því ákveðið að færa allt félagið í sama form.
Með þessari nýju skráningarsíðu verða skráningar markvissari, allar upplýsingar um iðkendur svo sem sími og netfang eru eins réttar og þær geta orðið. Þjálfarar geta haldið utan um mætingar iðkenda sinna, stjórnir deilda hafa betra yfirsýn, innheimta verður skilvirkari og allt utanumhald með betra móti en áður.
Kerfið heitir Nóri og er hýst af Dynax http://dynax.is/.
Þegar slóðin á heimasíðunni https://haukar.felog.is/ (einnig hægt að smella á „Skráning í vetrarstarf Hauka“ á haukar.is ) er valin er farið strax í „Nýskráning“. Þá opnast nýr gluggi og þá á að færa inn kennitölu (án bandstriks).


Hér þarf að fylla inn netfang og síma og velja sér lykilorð. Ekki þarf að bíða eftir að lykilorðið er samþykkt og er því ekki sent á netfang þannig að geymið vel lykilorðið.
Með því að velja “Er jafnframt iðkandi “ er hægt að sjá öll námskeið ætluð fullorðnum á vegum félagsins. Svo er hakað við eða ekki “Ávallt Haukari“ og er þá viðkomandi kominn sjálfvirkt inn á póstlista Hauka. Að lokum þarf að samþykkja skilmála og skrá.
Þetta er bara gert í upphafi við nýskráningu, næst þegar farið er inn í kerfið er farið í „Innskráning“.

Þá er komin skráning inn í kerfið og tekur við að skrá börnin inn. Valið er “Nýr iðkandi“ og birtast svo börn viðkomandi og þarf að skrá við þau neftöng og símanúmer og eru þau síðan valin inn í kerfið.
Til að sjá námskeið sem í boði eru fyrir hvern iðkanda þarf að smella á “Námskeið/Flokkar í boði“ og birtast þá öll námskeið/flokkar hjá Haukum sem í boði eru fyrir þann aldurshóp.


Nú er valið námskeið/flokk sem viðkomandi iðkandi ætlar að stunda þennan veturinn „Skráning á námskeið“.

Að lokum er greiðsla kláruð og þá er iðkandinn skráður í sína íþrótt.
Greiðslur án kreditkorts fara fram hjá íþróttastjóra félagsins í síma 525-8702 eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. á skrifstofutíma 10:00-15:00. Það sem er í boði er millifærsla eða skipting greiðslu í allt að 6 mánuði.

































