Körfuknattleiksdeildin með kynningu, föstudaginn kl. 18:30 í Veislusalnum

10. fl islandsmeistariKörfuknattleiksdeild Hauka verður með kynningu á leikreglum, leikmannakynningu og sameiginlegan foreldrafund með flokkum sem eru í 7 flokk og eldri.

Dagskrá hefst kl. 18:30 með foreldrafundum og svo kl. 19:15 byrjar kynning á helstu leikreglum leiksins og farið yfir helstu dómarareglur og leikreglur. Kynningin er sett upp fyrir foreldra og þá sem langar að vita meira um og skila leikinn betur sem áhorfendur.
kl. 19:45 verður svo kynning á leikmönnum mfl. karla og kvenna veturinn 2016/2017

Eftir fundinn verða seldar veitingar á vægu verði og verður opið áfram svo foreldrar/stuðningsmenn geti rætt við leikmenn og þjálfara um komandi vetur.

Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á því að kynna sér starfsemina og veturinn að mæta á fundinn.