Kirkjuhlaup skokkhóps Hauka

haukar_midVIÐ SKOKKUM Í FRIÐI OG SPEKT – ALLIR VELKOMNIR
Kirkjuhlaup í Hafnarfirði ANNAN í jólum.
Skokkhópur Hauka býður öllum í Kirkjuhlaup.

Við hittumst tímanlega við Ástjarnarkirkju kl. 10:00. og byrjum með léttri Hlaupamessu. Við leggjum svo af stað í hlaupið kl. 10:30.

Í fyrra skokkuðu ríflega 200 ferskir hlauparar með okkur alls staðar að. Hlauparar frá Hlaupahópi FH, Stjörnunni, Hlaupahópi Álftanes, Bíddu aðeins, ÍR, Hlaupahópi Fjölnis, Ármenningar ofl, ofl.
Þetta er ekkert keppnis, heldur bara til að njóta. Hlaupinn verður ca 14 km hringur og komið við hjá helstu kirkjum og kapellum Hafnarfjarðar.
1. Ástjarnarkirkja.- Byrjað á stuttri hugvekju frá prestinum.
2. Kapellan í Hafnarfjarðarkirkjugarði.
3. Kaþólska …Kirkjan í Hafnarfirð.
4. Klaustrið.
5. Fríkirkjan í Hafnarfirði.
6. Víðistaðakirkja.
7. Garðakirkja.
8. Hafnarfjarðarkirkja.
9. Ástjarnarkirkja – Endum á Kaffi, kakó og með því.

Ef allt er hlaupið er þetta um 14,5km.
Afar auðvelt er að stytta að vild, sérstaklega áður en hlaupið er að Garðakirkju (styttir hlaupið niður í 10km).
ALLIR HLAUPA Á SÍNUM HRAÐA OG NJÓTA.

FRIÐUR – ÁST – UMHYGGJA – HLAUP

Viðburðurinn er svo að sjálfsögðu á Fésbókinni: https://www.facebook.com/events/343283242724130/