Keflavík – Haukar í Dominos deild karla í kvöld

emilHaukar fara suður með sjó í kvöld og munu etja kappi við Keflvíkinga kl. 19:15 í kvöld.

Leikurinn er gríðarleglega mikilvægur þar sem Haukaliðið er í bullandi fallbaráttu og þurfa nauðsynlega á sigri að halda.

Haukar unnu Keflvíkinga örugglega í Schenkerhöllinni en Keflvíkingar eru ávalt sterkir á heimavelli og ljóst er að þetta verður erfiður og harður leikur. Strákarnir þurfa að mæta vel stemmdir í kvöld og hafa trú á verkefninu.