Kári Jónsson kominn aftur heim

Nú í hádeginu var undirritaður samningur á milli Kára Jónssonar og kkd Hauka um að Kári muni spila með sínu uppeldisfélagi út þetta tímabil.

Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hve gríðarlegur liðsstyrkur þetta er fyrir Haukaliðið en Kári spilaði síðast tímabilið 2015-2016 þar sem Haukar fóru alla leið í úrslit Dominosdeildar. Haukaliðið hefur nú styrkst gríðarlega síðustu daga, en öglugur erlendur leikmaður, Paul Jones, spilaði sinn fyrsta leik með liðinu í tapleik á móti Grindaví á útivelli í gær í hörku leik.

 

Við bjóðum Kára velkominn til baka og það verður spennandi að fylgjast með Haukaliðinu í vetur.