Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Körfuknattleiksdeild
Fréttir frá körfuknattleiksdeild Hauka

Tölfræðitröllið á RÚV

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Ásgeir er þekktasti tölfræðigúru HaukaÍ íslenska boltanum síðastliðið mánudagskvöld var umfjöllun um leik Hauka og Njarðvíkur í Domino´s deild kvenna. Rætt var við þjálfara og leikmenn.

Einnig var rætt við tölfræðitröllið Ásgeir Einarsson sem sér um beina tölfræðilýsingu á heimaleikjum Hauka. Ási hefur undanfarin ár séð um tölfræðina hjá Haukum og er hokin af reynslu þrátt fyrir ungan aldur.

Umfjöllun um leikinn hefst á mínútu 35:04 og rætt er við Ása á mínútu 37:07.

 

 

Umfjöllun um Brynjar Brynjarsson á Facebook síðu KKÍ

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Brynjar er núverandi þjálfari Marshall Community CollegeBrynjar Brynjarsson er í brennidepli á Facebook síðu KKÍ.

Brynjar sem er einn efnilegasti leikmaður Hauka frá upphafi stjórnar nú Marshall Community College í bandaríkjunum við góðan orðstír.

Lesa meira...
 

Bæði lið Hauka dottin út úr Poweradebikarnum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar voru með tvo fulltrúa í 16 liða úrslitum Poweradebikarsins, meistaraflokkinn og B-liðið.

Liðin léku leiki sína síðastliðinn sunnudag og mánudag og því miður töpuðust báðar viðureignir.

Haukar B fengu Njarðvík í heimsókn á sunnudaginn og urðu fyrir algjörri slátrun þar sem að Njarðvík vann 57-112.

Meistaraflokkur Hauka fékk ÍR í heimsókn á mánudagskvöldið og þrátt fyrir gríðarlega góða spilamennsku í öðrum og þriðja leikhluta þá sigraði ÍR 78-95.

Lesa meira...
 

Pétur Guðmundsson lætur af störfum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Stjórn körfuknattleiksdeildar Hauka og Pétur Rúðrik Guðmundsson þjálfari hafa komist að samkomulagi um að hann stigi til hliðar og hætti sem þjálfari meistaraflokksliðs Hauka.

Samstarf við Pétur hefur verið með ágætum og er honum þökkuð góð samvinna og framlag hans við uppbyggingu liðsins.

Ívar Ásgrímsson sem er yfirþjálfara yngri flokka hjá deildinni mun taka við af Pétri og klára keppnistímabilið samhliða því að þjálfa yngri flokka.

Einnig hefur verið gert samkomulag við Aaryon Williams um að hann hætti að leika með liðinu og er leit hafinn að eftirmanni hans.

f.h. kkd. Hauka
Samúel Guðmundsson formaður

 

 

Haukastúlkur fara í jólafrí með sigur í farteskinu

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar fengu Grindavík í heimsókn í gærkvöldi í 14. umferð Dominosdeildar kvenna þar sem þær sigruðu 73-64. Þetta er þar með þriðji sigurinn í seinustu fjórum deildarleikjum og stelpurnar á góðri siglingu og í baráttu við Val um 4. sætið í deildinni. Haukastúlkur fara því í jólafrí í góðu skapi en þær töpuðu gegn KR, 83-67, í DHL-Höllinni í leiknum þar á undan.

Lesa meira...
 


Síða 9 af 314
Borði
Borði


Molar

Haukastúlkur urðu Íslandsmeistarar í handbolta í fyrsta sinn árið 1945.  Í meistaraliðinu voru þær Svava Júlíusdóttir, Guðbjörg Magnúsdóttir, Soffía Júlíusdóttir, Guðný Guðbergsdóttir, Sigurlaug Arnórsdóttir og Kristín Þorvarðardóttir. (heimild Haukar 60. ára, bls. 50)

samstarfsadilar

Borði