Unnur Lára Ásgeirsdóttir úr Snæfelli hefur ákveðið að ganga til liðs við Hauka fyrir næsta tímabil. Unnur Lára er tvítug og var einn af lykilleikmönnum í efnilegur liði Snæfells sl. tímabil. Hún er kröftugur framherji og mun án efa styrkja efnilegan hóp Haukakvenna næsta vetur. Unnur er önnur Snæfellskvenna sem gengur til liðs við Hauka en áður hafði Gunnhildur Gunnarsdóttir tilkynnt félagsskipti yfir í Hauka.



Körfuknattleiksdeild


Verlaunaafhendingu á lokahofi KKÍ var í þann mund að ljúka og hlutu Haukar eftirtalin verðlaun:
Henning Freyr Henningsson var með myndavélina á lofti á leiknum og smellti nokkrum myndum við verðlaunaafhendingu beggja flokka.
Haukar urðu Íslandsmestarar í Unglingaflokki karla og kvenna í dag í tveim hörku leikjum. Báðir leikir byggðust þannig upp að útlitið var ekkert of bjart en með harðfylgni náðu Haukar í báðum tilfellum að skjótast fram úr og sigra.
Stúlknaflokkur beið ósigur gegn sterku liði Keflavíkur í úrslitum 10. flokks kvenna í dag en leikið var í Smáranum. Haukaliðið barðist mjög vel og stóðu í Keflvíkingum framan af en svo fór að Keflavík sigraði með 18 stigum 









