Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Körfuknattleiksdeild
Fréttir frá körfuknattleiksdeild Hauka

Íris Sverrisdóttir gengur í Hauka

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Reynir og ÍrisHaukar styrkjast enn fyrir komandi átök í Iceland Express deild kvenna í vetur. Íris Sverrisdóttir sem er ung og mjög efnilegur leikmaður skrifaði í gær undir samning við Hauka um að leika með liðinu næsta vetur.Íris á þegar að baki 3 A-landsleiki og var lykilmaður í liði Grindavíkur á síðustu leiktíð.

Íris mun styrkja liðið mjög næsta vetur en hún er fjórði leikmaðurinn sem kemur til liðs við Haukana fyrir næsta vetur en liðið mun verða mjög sterk á komandi vetri þar sem leikmannahópurinn frá síðasta tímabili er nánast óbreyttur.

Lesa meira...
 

Semaj Inge snýr aftur

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Það er orðið ljóst að Semaj Inge mun snúa aftur til Hauka og spila með liðinu á næstu leiktíð í Iceland Express-deildinni. Semaj fékk tilboð frá Haukum áður en hann fór af landi brott síðasta vor en hann var partur af liðinu sem vann sér rétt til að leika í efstu deild á komandi leiktíð. Semaj skrifaði undir nú um helgina og fékkst það staðfest frá Baldri Óla formanni meistaraflokksráðs.
Lesa meira...
 

Actavis og Körfuknattleiksdeild Hauka endurnýja styrktarsamning

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Guðbjörg og Samúel undirrita samningÍ dag var endurnýjaður samningur milli Actavís og Körfuknattleiksdeildar Hauka. Actavís hefur undanfarin 6 ár verið aðalstyrktaraðili körfuknattleiksdeildarinnar.  Í kjölfar góðs árangurs Hauka á síðasta ári ákvað Actavís að styðja enn betur við það grósku mikla starfi sem unnið er innan Körfuknattleiksdeildar Hauka. Á síðasta keppnistímabili varð meistaraflokkur kvenna bikarmeistari og meistaraflokkur karla vann sig upp í efstu deild. Þá unnu yngri flokkar Hauka í körfubolta 5 íslands- og bikarmeistaratitla á liðnu keppnistímabili þannig að ljóst er að framtíðin er björt  hjá Haukum.

Lesa meira...
 

Liðsstyrkur til Hauka

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Mynd badische-zeitung.deHaukum hefur borist liðsstyrkur fyirr komandi átök í Iceland Express-deildinni á næstu leiktíð en Gerald Robinson hefur skrifa undir samning við félagið.

Robinson er 26 ára gamall fæddur í Amsterdam en uppalinn í Bandaríkjunum. Hann spilaði með Tennesee Martinn háskólanum á árunum 2004-2008 og á lokaári sínu skoraði hann 14 stig, tók tæp 8 fráköst og var með rúman einn stolinn bolta að meðaltali í leik.

Lesa meira...
 

Ragna Margrét og Kristín Fjóla skrifa undir samninga við Hauka

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Henning, Ragna Margrét, Kristín Fjóla og ReynirKörfuknattleiksdeild Hauka og tvær uppaldar Haukastúlkur skrifuðu undir leikmannasamning í síðustu viku, en þetta eru þær Ragna Margrét Brynjarsdóttir landsliðsmiðherji og hinn fjölhæfi bakvörður Kristín Fjóla Reynisdóttir.  Báðar þessar stelpur hafa spilað með Haukum gegnum nánast alla  yngri flokka og unnið saman marga titla á ferlinum.  Þær hafa einnig fylgst að í yngri landsliðum Íslands og verið landi og þjóð til sóma hvar sem þær koma.  Ragna Margrét hefur einnig verið fastamaður í A landsliði íslands undanfarin misseri.

Lesa meira...
 


Síða 3 af 227
Borði
Borði


Molar

Á félagsfundi í Haukum i ársbyrjun 1932 var samþykkt að félagið óskaði eftir aðild að ÍSI.  Félagið var skömmu síðar samþykkt sem fullgildur aðili að ÍSÍ.  (Heimild: Haukar í 60 ár, bls. 7)