Haukum hefur borist liðsstyrkur fyirr komandi átök í Iceland Express-deildinni á næstu leiktíð en Gerald Robinson hefur skrifa undir samning við félagið.
Robinson er 26 ára gamall fæddur í Amsterdam en uppalinn í Bandaríkjunum. Hann spilaði með Tennesee Martinn háskólanum á árunum 2004-2008 og á lokaári sínu skoraði hann 14 stig, tók tæp 8 fráköst og var með rúman einn stolinn bolta að meðaltali í leik.
Robinson spilaði í þýskalandi á síðustu leiktíð með USC Freiburg en þar á undan spilaði hann á Spáni og á Bretlandi. Koma Robinson til Hauka er mikill styrkur fyrir hið unga og efnilega lið Hauka sem hefur æft vel í sumar og verður spennandi að sjá þá spreyta sig meðal þeirra bestu á komandi leiktíð.




































