Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Körfuknattleiksdeild Haukastelpur í undanúrslit

Haukastelpur í undanúrslit

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Kiki Lund var sjóðandi í leiknum í gærHaukar unnu Grindavík í gær í umspili fyrir úrslitakeppni IE-deildar kvenna 81-74 og einvígið 2-0. Leikurinn var hnífjafn frá fyrstu mínútu fram á þá síðustu og var mikil spenna sem einkenndi báðar viðureignir þessara liða. Það er því ljóst að Haukar mæta KR í undanúrslitum og hefst sú rimma á laugardaginn.


Haukar skoruðu fyrstu stig leiksins en Grindvíkingar komust yfir með þriggjastigaskoti. Haukar skoruðu næstu körfu en þá kom góður kafli frá Grindavík og þær breyttu stöðunni úr 4-3 í 4-11. Haukar minnkuðu muninn jafnt og þétt og voru að endingu búnar að jafna í 18-18 og komust yfir áður en leikhlutanum lauk en hann endaði með jafntefli 23-23.

Eins og áður segir þá var leikurinn jafn og spennandi og leiddu Haukar með þremur stigum í hálfleik, 41-38. Grindavík átti yfirhöndina eftir þriðja leikhluta 56-57 og að endingu unnu Haukar flottan sigur eftir góðan endasprett 81-74.

Kiki Lund var stigahæst Hauka með 30 stig og Heather Ezell gerði 19 stig og var með 11 stoðsendingar flestar á Kiki.

Umfjöllun um leikinn á karfan.is

Sagt eftir leik

Tölfræði leiksins

Myndasafn úr leiknum

 
Borði
Borði


Molar

Í sögu Hafnarfjarðar, sem Sigurður Skúlason, magister skrifaði, og kom út árið 1932, er minnst á öll þau íþróttafélög sem höfðu starfað og voru starfandi í bænum á þeim tíma.  Þar á meðal eru Haukar nefndir til sögunnar sem yngsta íþróttafélagið í bænum.  Fimleikafélag Hafnarfjarðar er ekki nefnt á nafn í þessari samantekt sem vekur upp spurningar hvort Haukar séu ekki í raun réttri elsta starfandi íþróttafélag í Hafnarfirði.