Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Körfuknattleiksdeild Stórsigur Hauka á Snæfelli

Stórsigur Hauka á Snæfelli

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukastúlkur gerðu góða ferð í Stykkishólm í kvöld þegar þær mættu heimastúlkum í Snæfelli. Stórsigur vannst 55-91 og Haukar sitja áfram í efsta sæti B-riðils.

Haukar kláruðu dæmið strax í fyrri hálfleik og var sigur þeirra aldrei í hættu. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 6-23 og 14-46 í hálfleik. Snæfellingar bitu aðeins frá sér í þriðja leikhluta og unnu þann leikhluta með 10 stigum.

Stigahæst í Haukaliðinu var engum að óvörum Heather Ezell með 32 stig, 12 fráköst og 6 stoðsendingar en næst henni var Guðrún Ámundadóttir með 13 stig. 

 
Borði
Borði


Molar

Meistaraflokkslið Hauka í handbolta varð Íslandsmeistari á fjórða íslandsmótinu í handknattleik árið 1943, og urðu þar með fyrsta hafnfirska félagið til að verða Íslandsmeistari í flokkaíþrótt.