Haukastelpur unnu öruggan sigur á Njarðvík í kvöld 73-41 í Subwaybikar kvenna.
Haukaliðið var sterkari aðilinn allan leikinn og var sigurinn mjög sannfærandi. Henning þjálfari gat leyft sér að hvíla stóran hluta af byrjunarliði sínu mest allan seinni hálfleikinn.
Að þessu sinni var Heather Ezell ekki stigahæst en hún skoraði 16 stig og Kiki Lund var atkvæðmest með 18 stig. Ragna Margrét Brynjarsdóttir var nálægt tvennunni með 9 stig og 11 fráköst.
Bikarúrslitaleikurinn verður 20. febrúar en þá etja kappi Haukar við Keflavík í úrslitum.
Umfjöllun um leikinn á Karfan.is
Myndasafn úr leiknum á Karfan.is
Viðtal við Henning Henningsson á Karfan.is















