Íþróttaskóli Hauka 2013
Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2013 fyrir börn fædd 1998-2011 með svipuðu sniði og áður. Skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007 og er óhætt að segja að börn og foreldrar hafi tekið þessu framtaki Hauka mjög vel. Um 1000 börn sóttu skólann hér síðasta sumar í yndislegu veðri eins og alltaf er á Ásvöllum. Gísli Guðmundsson, markmannsþjálfari í handbolta og íþróttafræðingur mun sjá um skólann í sumar eins og undanfarin sumur.
Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum. Allir kennarar skólans hafa mikla reynslu af þjálfun yngri barna.
Boðið er upp á gæslu frá 08:00-09:00 á morgnana, einnig er boðið upp á heitan hádegismat fyrir þá sem eru allan daginn hjá okkur einnig fyrir þá sem eru hálfan daginn og eru að fara á æfingu beint í framhaldi. Þetta sumarið er gæsla innifalin í verði.
Öll námskeið eru vikunámskeið.
Skólinn er opinn fyrir alla Hafnfirðinga og nærsveitarmenn.
Í sumar bjóðum við upp á tvo skóla fyrir eldri iðkendur:
Í ár ætlum við að bjóða upp á tækniskóla í knattspyrnu fyrir iðkendur 10-15 ára. Skólinn er byggður upp á tækniæfingum og er gert ráð fyrir að iðkendur séu að æfa knattspyrnu. Fyrir námskeiðinu fer reynslumikill þjálfari sem hefur þjálfað við góðan orðstýr.
Hámark iðkenda á hvert námskeið er 15.
Tækniskólinn er kl. 09:30-12:00 og er gjaldið 10.000 fyrir vikuna.
Tækniskóli í handbolta (Nýjung)
Í ár ætlum við að bjóða upp á tækniskóla í handbolta fyrir iðkendur sem eru að fara í 6. - 8. bekk. Skólinn er byggður upp á tækniæfingum og er gert ráð fyrir að iðkendur séu að æfa handbolta. Gert er út á einstaklinginn og að þróa hans getu. Fyrir skólanum fer Gísli Guðmundsson, íþróttafræðingur og markmanns- og afreksþjálfari handknattleiksdeildar.
Tækniskólinn er kl. 13:00-16:00 og er gjaldið 10.000 fyrir vikuna.
Hámark iðkenda á hvert námskeið er 15.
Þessi skólar eru í boði sumarið 2013:
Fjölgreinaskóli Hauka fyrir 5-12 ára (2001-2007)
Námskeið fyrir hádegi allt sumarið.
Námskeið eftir hádegi og allan daginn 10. júní – 5. júlí og 6.- 16. ágúst.
Fjölbreytt íþrótta- og leikjanámskeið við allra hæfi, jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna íþróttaiðkendur. Skipt er í hópa eftir aldri, getu og vinatengslum svo að allir fái að njóta sín. Öðru hverju er dagskráin brotin upp og farið í sundferð, gönguferð, hjólatúr o.s.frv. sem verður þá auglýst með góðum fyrirvara.
Fótboltaskóli Hauka fyrir 5-12 ára (2001-2007)
Námskeið fyrir hádegi allt sumarið.
Fótboltaskóli Hauka verður starfræktur í allt sumar. Fjölbreyttar æfingar fyrir þá sem vilja vera í fótbolta meira og minna allan daginn.
Reynslumiklir leiðbeinendur fara fyrir námskeiðinu.
Íþróttaleikskólinn fyrir 2-5 ára (2007-2011)
Námskeið fyrir hádegi 8.júlí - 1. ágúst.
Íþróttaleikskólinn verður í boði í 4 vikur þegar leikskólarnir fara í sumarfrí. Námskeiðið verður í anda leikjaskóla barnanna sem er starfræktur á veturna hjá Haukum þar sem markmiðið er að börnin fái jákvæð og skemmtileg fyrstu kynni af ýmsum leikjum og íþróttum. Skólinn fer fram inni í íþróttasalnum.
Foreldrar eru hjartanlega velkomnir að vera með börnum sínum.
Körfuboltaskóli fyrir 5-12 ára (2001-2007)
Námskeið fyrir hádegi 10.-28. júní og 6.-16. ágúst
Körfuboltaskólinn er fyrir þá sem langar að bæta við sig kunnáttu í körfubolta. Settar verða upp æfingar sem auka boltafærni, farið í leiki og spilaður körfubolti. Það eru allir velkomnir, byrjendur sem lengra komnir.
Handboltaskóli fyrir 5-12 ára (2001-2007)
Námskeið fyrir hádegi 6.-16. ágúst
Handboltaskólinn er fyrir þá sem langar að bæta við sig kunnáttu í handbolta. Settar verða upp æfingar sem auka boltafærni, farið í leiki og spilaður handbolti. Það eru allir velkomnir, byrjendur sem lengra komnir.
Tækniskóli í handbolta (Nýjung)
Námskeið frá kl. 10:00-13:00 í viku 2, 9 og 10.
Í ár ætlum við að bjóða upp á tækniskóla í handbolta fyrir iðkendur sem eru að fara í 6. - 8. bekk. Skólinn er byggður upp á tækniæfingum og er gert ráð fyrir að iðkendur séu að æfa handbolta. Gert er út á einstaklinginn og að þróa hans getu. Fyrir skólanum fer Gísli Guðmundsson, íþróttafræðingur og markmanns- og afreksþjálfari handknattleiksdeildar.
Tækniskólinn er kl. 13:00-16:00 og er gjaldið 10.000 fyrir 5 daga viku en 8.000 fyrir 4 daga viku.
Hámark iðkenda á hvert námskeið er 15.
Tækniskóli í knattspyrnu
Námskeið frá kl. 09:30-12:00 í vikum 2, 9 og 10.
Í ár ætlum við að bjóða upp á tækniskóla í knattspyrnu fyrir iðkendur 10-15 ára. Skólinn er byggður upp á tækniæfingum og er gert ráð fyrir að iðkendur séu að æfa knattspyrnu. Fyrir námskeiðinu fer reynslumikill þjálfari sem hefur þjálfað við góðan orðstýr.
Hámark iðkenda á hvert námskeið er 15.
Tækniskólinn er kl. 09:30-12:00 og er gjaldið 10.000 fyrir 5 daga viku en 8.000 fyrir 4 daga viku.
Vikur sem í boði eru:
О 1. 10. – 14. júní
О 2. 18. – 21. júní (4 dagar)
О 3. 24. – 28. júní
О 4. 1. – 5. júlí
О 5. 8. – 12. júlí
О 6. 15. – 19. júlí
О 7. 22. – 26. júlí
О 8. 29. – 1. ágúst (4 dagar)
О 9. 6. – 9. ágúst (4 dagar)
О 10. 12. – 16. ágúst
Hádegismatur
Hádegismaður er í boði fyrir þá sem eru allan daginn og er hann þá innifalin í verði. Einnig geta þeir sem eru hálfan daginn keypt hádegismat og kostar vikan 2.000 (1.600 fyrir 4 daga viku).
Þátttökugjöld
Heilsdagsskóli kostar 8.000 með mat - vikan.
Hálfdagsskóli kostar 4.000 - vikan.
Tækniskólinn kostar 10.000 vikan en 8.000 fjögurra daga vika.
Skráningar
Tekið verður við skráningum á heimasíðu félagsins haukar.is frá og með 20. maí.
Við skráningu þarf að ganga frá greiðslu.
Hægt er að greiða með kreditkorti eða millifærslu. Ef greitt er með millifærslu þarf að senda kvittun á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
, takið fram í skýringu nafn barns, hvaða skóli varð fyrir valinu og hvaða tímabil. Millifærslan þarf að koma strax við skráningu, annars er skráning ekki gild og verður felld út.
Millifærslureikningur er:
0140-26-000626
kt. 700387-2839
UPPFÆRSLA Á ÞESSU HÉR AÐ NEÐAN VERÐUR NÆSTU DAGA FYRIR SUMARIÐ 2013.
Sumaræfingar í körfubolta fyrir stelpur og stráka
Í sumar verða æfingar með svipuðu sniði og var gert í fyrrasumar og gekk það mjög vel. Þetta verða tvær 120 mín. æfingar (báðir salir á Ásvöllum) í viku, í 10 vikur. Inniæfingarnar verða frá kl. 16:00 – 18:00, þriðjudaga og fimmtudaga. Á miðvikudögum verður svo styrktaræfing undir handleiðslu Kristjáns Ómars, samtals þrjár æfingar í viku í 10 vikur.
Fyrir þessar 10 vikur (30 æfingar samtals) þarf að greiða 15.000 kr. + skráning í íbúagáttina/mínar síður. Þetta er 500 kr. fyrir hverja æfingu ef alltaf er mætt. Ekki er hægt að greiða minna en þetta, þó svo að krakkar geti ekki mætt allan tímann – einungis eitt gjald. Skráning er á https://haukar.felog.is/, körfuknattleiksdeild - sumaræfingar 2012 kk/kvk. Þar er hægt að ganga frá gjald með kreditkorti eða millifærslu. Millifærslan þarf að koma strax í kjölfarið svo skráningin detti ekki út.
Millifærslureikningur er:
0140-26-017171
kt. 670281-0519
Þessar sumaræfingar eru fyrir krakka sem eru að byrja í 7. bekk á næsta ári (fædd árið 2000) og til unglinga fædda árið 1995. Ljóst er að margir iðkendur sem fæddir eru 1995 og 1996 verða að vinna á þessum tíma og komast ekki á þessar æfingar en þeir eru flestir að æfa með mfl. félagsins í sumar.
Byrjað verður þriðjudaginn 5. júní og verða æfingar til 27. júlí þá kemur viku frí og eftir það verður fyrst æfing 7. ágúst. Þetta eru 12 æfingar í júní, 13 æfingar í júlí og 6 æfingar í ágúst (sú fyrsta 7. ágúst).
Ívar Ásgrímsson verður yfirþjálfari og auk þess verða 2-3 aðstoðarþjálfarar á öllum æfingum. Krökkunum verður skipt niður eftir aldri og verður reynt að hafa þjálfunina eins einstaklingsmiðaða og hægt er. Lagt er áherslu á bolta- og skotæfingar og verða allar æfingar gerðar með það í huga að krakkarnir séu alltaf með bolta í höndunum.
Einnig vil ég benda ykkur á það að æfingar fyrir krakka sem fædd eru árið 2000 og fyrr (12 ára og yngri á árinu) eru í gegnum íþróttaskóla Hauka frá kl. 09:00-12:00 í nokkrar vikur í sumar. Hægt að sjá nánari upplýsingar á heimasíðu Hauka http://haukar.is/ undir „Sumaríþróttaskóli Hauka“.
































