Hildigunnur og Sæunn endurnýja samninga við knattspyrnudeild Hauka

Hildigunnur Ólafsdóttir og Sæunn Björnsdóttir, leikmenn meistaraflokks kvenna, hafa skrifað undir samninga við knattspyrnudeild Hauka sem gilda til 31. desember 2018.

Hildigunnur, sem spilar jafnan á kantinum eða sem framherji, hefur leikið 70 leiki með meistaraflokki kvenna og skorað 29 mörk.

Hildigunnur er 24 ára gömul og er ein af reynsluboltum liðsins en hún spilaði sinn fyrsta leik með meistaraflokki kvenna árið 2012.

Sæunn, sem spilar jafnan sem djúpur miðjumaður, er aðeins 15 ára gömul en hún spilaði alls 22 leiki með meistaraflokki kvenna sl. sumar er liðið tryggði sér sæti í Pepsí deildinni og skoraði hún eitt mark.

Sæunn vakti mikla athygli síðasta sumar enda fremur fáheyrt að 14 ára leikmenn spili lykil hlutverk í meistaraflokki.

Knattspyrnudeild Hauka fagnar nýjum samningum við þær Hildigunni og Sæunni og bindur miklar vonir við þær í Pepsí deildinni í sumar.

Sæunn og Hildigunnur við undirskrift samninga við knattspyrnudeild Hauka.

Sæunn og Hildigunnur við undirskrift samninga við knattspyrnudeild Hauka.