Heiða og Sunna framlengja við knattspyrnudeild Hauka

Þær Heiða Rakel Guðmundsdóttir og Sunna Líf Þorbjörnsdóttir hafa framlengt samninga sína við Knattspyrnudeild Hauka og gilda nýir samningar til 31. desember 2019.

Heiða Rakel, sem er á 22. aldursári, á að baki 72 leiki fyrir meistaraflokk Hauka en hún er uppalin hjá félaginu. Í þeim leikjum hefur hún skorað 16 mörk og verið lykilmaður í sóknarleik liðsins undanfarin tímabil. Þá á hún að baki tvo leiki með U19 landsliði Íslands.

Sunna Líf, sem er á 19. aldursári, á að baki 23 leiki fyrir meistaraflokk Hauka en hún er einnig uppalin hjá félaginu. Í þeim leikjum hefur hún skorað 1 mark. Sunna Líf hefur verið valin í æfingahópa U19 landsliðsins og staðið sig vel.

„Á Ásvöllum er verið að byggja til framtíðar og framlenging samninga við lykilmenn er stór liður í þeirri vinnu. Það ríkir gríðarleg ánægja með skuldbindingu Heiðu og Sunnu og við væntum mikils af þeim í komandi verkefnum,“ segir Jakob Leó Bjarnason þjálfari meistaraflokks kvenna.

Að sögn Jakobs hefur Heiða Rakel hefur verið fyrirliði liðsins í vetur.  ,,Hún er augljóslega mikilvægur hlekkur fyrir okkur innan sem utan vallar. Það er ekkert leyndarmál að hún er lykilmaður í okkar sóknarleik og ég er ekki í vafa um að hún muni skína skært í sumar.“

,,Sunna Líf er okkur einnig mjög mikilvæg, enda er Sunna fjölhæf og getur leyst ýmsar stöður, sóknarlega sem og varnarlega. Hún stimplaði sig inn í lið Hauka síðastliðið sumar og átti gott sumar í hægri bakverðinum í Pepsí deildinni,“ segir hann.

Að sögn Jakobs hafa allir okkar leikmenn bundið sig verkefninu og því beri að fagna. ,,Stefnan er að hópurinn verði endanlega klár á næstu vikum en liðið fer svo í æfingaferð til Albir um miðjan apríl en þar mun lokaundirbúningurinn fara fram. Við hvetjum hreinlega alla Haukamenn og konur til að styðja við bakið á okkur í sumar.“

Knattspyrnudeild Hauka óskar þeim Heiðu og Sunnu til hamingju með nýju samningana og væntir mikils af þeim í komandi verkefnum.

 

Sunna Líf og Heiða Rakel.