Haukar – Þór Þ. í kvöld, föstudag, kl. 19:15 í Schenkerhöllinni.

Haukar taka á móti Þór frá Þorlákshöfn í kvöld kl. 19:15 í Dominos deild karla og hvetjum við allt Haukafólk til að mæta og styðja drengina í þessum mikilvæga leik.

Haukar sitja í 6-8 sæti með 4 sigurleiki eftir 9 umferðir. þór er einum leik á eftir og geta með sigri jafnað Haukana að stigum og er því leikurinn gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið. Hauka lágu í síðustu umferð fyrir Grindavík á útivelli en liðið spilaði nokkuð vel og var baráttan til fyrirmyndar hjá liðinu. Liðið var án tveggja stærstu leikmanna sinna en Marques og Kristján hafa báðir verið meiddir og gátu ekki tekið þátt í leiknum. það voru því stór skörð höggin í liðið en baráttan var til fyrirmyndar og tapaðist leikurinn rétt í lokin en Grindvíkingar hittu úr mikilvægum þristum í lokin til að klára leikinn.

Við hvetjum allt Haukafólk til að mæta á leikinn, liðið þarf á stuðningi að halda í baráttunni.

Áfram Haukar.