Haukar – Stjarnan í Dominos deild kvenna kl. 19:15 í kvöld

csu_mitchell_pbcactionHaukastúlkur taka á móti liði Stjörnunnar í kvöld, miðvikudag, kl. 19:15 í Schenkerhöllinni.

Haukarnir áttu ágætis leik í síðasta leik á móti Skallagrími í Fjósinu í Borgarnesi. Skallagrímur náðu fljótt undirtökunum í leiknum og leiddu allan leikinn en Haukarnir voru aldrei langt undan. Er um 3 min. voru eftir var munurinn einungis 3 stig en þá hitti Sigrún (gömul Haukamanneskja) úr þrist og Skallagrímur náði aftur tökum á leiknum.

Stelpurnar sýndu mikla baráttu í þeim leik og nú verða þær að sýna enn meiri baráttu á heimavelli og ná sínum öðrum sigri.

Við hvetjum fólk til að mæta og styðja ungt lið Hauka áfram í baráttunni.