Haukar – Snæfell í kvöld kl. 19:15

Rósa Björk Pétursdóttir

Rósa Björk Pétursdóttir

Í kvöld, miðvikudaginn 19. október, koma íslandsmeistarar Snæfells í heimsókn og hefst leikurinn kl. 19:15 í Schenkerhöllinni.

Haukastelpurnar lágu í síðasta leik á móti Keflavík á útivelli og spiluðu frekar illa í þeim leik og létu harða vörn heimastúlkna setja sig útaf laginu.

Haukar og Snæfell hafa háð harða keppni síðustu ár og má búast við því að það haldi áfram. Haukastelpurnar eru ákveðnar í því að koma grimmar til leiks og sýna að margt sé í þetta unga lið Hauka spunnið.

Við hvetjum alla til að mæta í Schenkerhöllina og hvetja stelpurnar áfram í baráttunni.