Haukar – KR miðvikudaginn 11. apríl kl. 19:15 í Schenkerhöllinni.

þriðju leikur Hauka – KR fer fram í kvöld kl. 19:15 í Schenkerhöllinni og hvetjum við alla Hafnfirðinga og Haukafólk til að fjölmenna og styðja strákana áfram í baráttunni.

Staðan er 1-1 en báðir leikir hafa unnist á heimavöllum. Síðasti leikur í DHL höllinni var hin besta skemmtun og góður körfubolti spilaður og leikurinn var gríðarlega spennandi allan tímann. Haukar leiddu nánast allan leikinn og voru betri aðilinn í 38 min., en það þarf að klára leikina. Haukum tókst á einhvern óskiljanlegan hátt að rétta KR leikinn og náðu þeir með ótrúlegu 3ja stiga skoti að jafna leikinn og því þurfti að grípa til framlengingar. Í framlengingunni voru KR mun ákveðnari og tryggðu sér sigur.

Vel hefur verið mætt á leiki Hauka í úrslitakeppninni og frábær stemning á pöllunum. Við hvetjum alla til að mæta snemma og forðast biðraðir.