Haukar – ÍBV á morgun – Frítt inn í boði Fjarðarkaupa

Björgvin varð mjög vel í leiknum gegn ÍR. Mynd: VísirErnir

Strákarnir í meistaraflokki í handbolta leika sinn annan leik á tímabilinu á morgun, sunnudag, þegar að ÍBV kemur í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 18:00. Bæði lið unnu leik sinn í fyrstu umferð en Haukar unnu ÍR 21 – 19 á meðan ÍBV vann Aftureldingu 27 – 23.

Það eru miklar tengingar á milli þessa liða en í liði ÍBV eru uppöldu Haukamennirnir Aron Rafn Eðvarðsson og Sigurbergur Sveinsson en Sigurbergur var markahæstur í liði ÍBV í leiknum gegn Aftureldingu með 8 mörk.

Þessi liðið hafa marga hildina háð síðustu ár og má því búast við hörkuleik þegar að liðin mætast í Schenkerhöllinni á morgun, sunnudag, og því um að gera fyrir allt Haukafólk að fjölmenna. Áfram Haukar!