Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Haukar í horni

Haukar í horni er stuðnings- og styrktarfélag Hauka. Einstaklingum og fyrirtækjum gefst báðum kostur á því að gerast meðlimir í Haukum í horni. Félagið var stofnað árið 1990 af handknattleiksdeild Hauka með það markmið að fjármagna komu tékkneska landsliðsmannsins Petr Baumruk til Hauka. Má segja að þetta framtak hafi hitt beint í mark. Bæði reyndist Baumruk okkur góður og mikilvægur leikmaður og fyrirmyndar félagi. Einnig hefur myndast góður félagsskapur og mikil stemning í kringum Hauka í horni. Stuðnings- og styrktarfélagið er þvi orðið hornsteinn í starfi Hauka.

 

Handknattleiks-, knattspyrnu- og körfuknattleiksdeildirnar hafa nú tekið höndum saman um rekstur meistaraflokkana. Meistaraflokkar félagsins verða því framvegis reknir saman undir Rekstrarfélagi Hauka.  Ákveðnum hluta af tekjum Hauka í horni er ráðstafað til barna og unglingastarfs félagsins með kaupum á boltum, búningum og öðrum búnaði.

 

Það eru mikil gleðitíðindi fyrir okkur Haukafólk að við séum að sameinast undir einum hatti og verður hið sterka stuðnings- og styrktarfélag Haukar í horni því félagið okkar allra!

 

Hvað er innifalið í pakkanum, Haukar í horni?

 

Haukar í horni - Gullfélagi

 - Ársmiði á alla deildarleiki Hauka í meistaraflokki karla og kvenna(fótbolti, handbolti og körfubolti). Gildir ekki á bikarleiki, evrópuleiki og oddaleiki í úrslitakeppni

 - Merkt sæti í stúkunni

 - Aðgangur að VIP herbergi á leikdag hjá öllum deildum

 - Léttar veitingar á leikdag i VIP herbergi

 - Þjálfarateymið leggur línurnar fyrir leik og fer yfir stöðuna í hálfleik

 - 1-2 máltíðir á hverri leiktíð með leikmönnum og þjálfurum í hverri deild fyrir sig (fótbolti, handbolti og körfubolti)

 - Regluleg fréttabréf með stórum og smáum fréttum um meistaraflokkana og starfið

 - Verð: 3.300 krónur á mánuði í 12 mánuði á ári. Hjón: 5.500 krónur á mánuði í 12 mánuði á ári

 

Haukar í horni - Silfurfélagi

 - Ársmiði á alla deildarleiki Hauka í meistaraflokkikarla og kvenna(fótbolti, handbolti og körfubolti). Gildir ekki á bikarleiki, evrópuleiki og oddaleiki í úrslitakeppni

 - Aðgangur að VIP herbergi á leikdag hjá öllum deildum

 - Léttar veitingar á leikdag i VIP herbergi

 - Þjálfarateymið leggur línurnar fyrir leik og fer yfir stöðuna í hálfleik

 - 1-2 máltíðir á hverri leiktíð með leikmönnum og þjálfurum í hverri deild fyrir sig (fótbolti, handbolti og körfubolti)

 - Regluleg fréttabréf með stórum og smáum fréttum um meistaraflokkana og starfið

 - Verð 2.500 krónur á mánuði á ári. Hjón: 4.000 krónur á mánuði í 12 mánuði á ári

 

Allar upplýsingar um Hauka í horni veita:

Ásdís Geirsdóttir s: 698-7182 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Gréta Grétarsdóttir s: 660-2767 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Hægt er að skrá sig hér í Hauka í horni.

 
Borði


Molar

Meistaraflokkslið Hauka í handbolta varð Íslandsmeistari á fjórða íslandsmótinu í handknattleik árið 1943, og urðu þar með fyrsta hafnfirska félagið til að verða Íslandsmeistari í flokkaíþrótt.