Haukar heimsækja Stjörnuna í Dominos deild kk í kvöld kl. 19:15

FagnHaukar heimsækja Stjörnuna í næst síðustu umferð í Dominos deild karla í kvöld, sunnudaginn 5. mars og hefst leikurinn kl. 19:15 í Ásgarði.

Haukarnir unnu síðasta leik á heimavelli á móti Snæfell, nokkuð örugglega en strákarnir þurfa fleiri sigra til að tryggja sætið í Dominos deildinni. Með sigri komst liðið úr fallsæti þar sem Haukar hafa betur í innbyrðis leikjum á móti Skallagrím. Liðið eru jöfn af stigum er tvær umferðir eru eftir og því þurfa strákarnir að koma grimmir til leiks og ná í mikilvægan sigur.

Við hvetjum allt Haukafólk til að gera sér ferði í Garðabæinn og hvetja strákana áfram í baráttunni.