Haukar – Fjölnir í kvöld kl. 19:30

Það er stutt á milli leikja þessa dagana hjá meistaraflokki kvenna í handbolta en eftir frábæran sigur á Stjörnunni á laugardag mæta stelpurnar Fjölni í kvöld í Schenkerhöllinni kl. 19:30.

Fyrir leik kvöldsins eru Haukastelpur í 2. sæti með 15 stig úr 10 leikjum á meðan Fjölnir er í 7. sæti með 4 stig úr leikjunum 10. Þetta er í annað sinn sem liðin mætast á tímabilinu en fyrri leik liðanna í Grafarvogi lauk með sigri Hauka 20 – 18 í hörkuleik.

Það má því búast við öðrum hörkuleik í kvöld þegar að liðin mætast í Schenkerhöllinni kl. 19:30 en stelpurnar hafa spilað frábæran handbolta að undaförnu og eiga það skilið að Haukafólk mæti og styðji þær í toppbaráttunni. Áfram Haukar!