Haukar – Breiðablik laugardag kl. 16:30. Deildarbikarinn afhentur í leikslok

Topplið og deildarmeistarar Dominos deildar kvenna taka á móti Breiðablik laugardaginn 17. mars kl. 16:30 í Schenkerhöllinni, en liðið mun fá afhentan deildarmeistaratitilinn í leikslok þar sem liðið hefur nú þegar tryggt sér titilinn þó enn séu þrjár umferðir eftir.

Haukar hafa unnið síðustu 14 leiki í deildinn og hafa ekki tapað leik á árinu og hafa verið á þvílíku skriði.

Við hvetjum fólk til að mæta á leikinn og styðja stelpurnar áfram á sigurbraut og að taka þátt í verðlaunaafhendingunni að leik loknum.

Áfram Haukar.