Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Handknattleiksdeild
Fréttir frá handknattleiksdeild Hauka

2. flokkur Íslandsmeistari í handknattleik

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Síðastliðin föstudag varð 2. flokkur karla Íslandsmeistarar þegar "strákarnir okkar" unnu Akureyri 30 - 29 í afar spennandi leik í Austurbergi þar sem Aron Rafn tryggði sigur Hauka með að verja vítakast þegar leiktíminn var útrunnin.

Strákarnir urðu einnig deildarmeistarar og unnu svo FH í undanúrslitum í æsispennandi leik með einu marki.

Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill sem Haukar vinna í 2. flokki karla í handknattleik.

Haukasíðan óskar strákunum og þjálfurum til hamingju.

 

Nú verða allir að mæta í Austurberg kl: 16:30 föstudaginn 14. maí

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarLoksins eftir að "stóra ljósaperumálinu" lauk verður spilaður úrslitaleikurinn í 2. fl. karla um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta.

Leikurinn fer fram í Austurbergi föstudaginn 14. maí og hefst kl 16:30. Eins og allir Haukamenn vita skiptir stuðningur áhorfenda miklu máli eins og sást svo vel í úrslitarimmunni í meistarflokki karla. Sköpum stuð og stemmningu á pöllunum og hvetjum strákana til sigurs.

Áfram Haukar

 

 

Gullhátíð Hauka - Lokahóf handknattleiksdeildar 12. maí

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarEinu glæsilegasta handknattleikstímabili Hauka er nýlokið. Á morgun, miðvikudaginn 12. maí, ætlar Haukafólk að koma saman að Ásvöllum og fagna árangrinum á GULLHÁTÍÐ HAUKA – lokahófi handknattleiksdeildar. Á hófinu verður farið yfir árangurinn í vetur í máli og myndum, veittar verða viðurkenningar og dansað fram á rauða nótt. Húsið opnar kl. 19:30 og borðhald hefst kl. 20:30. Á boðstólnum er glæsilegur meistarakvöldverður frá RedFood, sjá matseðil hér að neðan. Miðaverð er 2.900 kr. og verða miðar afhentir við innganginn. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með tölvupósti til Ásdísar Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Að loknum kvöldverði og hefðbundinni dagskrá er miðaverð 1.000 kr.

Lesa meira...
 

HAUKAR ERU BESTIR !!

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

 

 

Haukar eru Íslandsmeistarar 2010. Haukar eru bestir.

 

Myndir frá þriðja leik Hauka og Vals á Ásvöllum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Vilji er allt sem þarfÞað var gríðarleg stemmning á þriðja leik Hauka og Vals á Ásvöllum þar sem Haukar fóru með öruggan sigur af hólmi. Pétur Haraldsson var mættur til að taka myndir og má skoða þær með því að velja "lesa meira" hér að neðan.

Lesa meira...
 


Borði


Molar

19. janúar 1938 var kvennaflokkur Hauka stofnaður af 41 stúlku.  Kvennadeildin var fjörefni félagsins á þeim tíma og héldu stúlkurnar merki Hauka hátt á lofti. (Heimild: Haukar í 60 ár, bls. 21-22)