Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Handknattleiksdeild Sigur í spennuleik

Sigur í spennuleik

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Sigurbergur Sveinsson skorar sigurmarkið úr vítakastiSigurbergur Sveinsson tryggði Haukum eins marka sigur á Val í toppslag í N1 deild karla í kvöld með því að skora úr víti eftir að leiktíminn rann út. Sigurbergur átti einmitt sendingu frá miðju niður í horn þegar örfáar sekúndur voru eftir og Valsmenn höfðu jafnað leikinn og Guðmundur Árni Ólafsson fór inn og sótti vítakastið. Sigurbergur Sveinsson fór mikinn í leiknum og skoraði 9 mörk og Aron Rafn átti stórleik í markinu og varði 24 skot þar af fjölmörg úr sannkölluðum dauðafærum. Lokatölur 25-24 og Haukar með örugga forystu á toppi deildarinnar.




Það vill oft gerast að lið mæti hálf kærulaus til leiks eftir að hafa unnið bikarmeistaratitilinn og steinliggi í næsta leik. Haukastrákarnir unnu því gríðarlega mikilvægan sigur í kvöld með því að leggja Valsmenn með einu marki. Ungu strákarnir gegndu stóru hlutverki í leik liðsins í kvöld auk þess sem Sigurbergur mætti mjög einbeittur til leiks. Aron Rafn Eðvarðsson stóð allan tímann í marki heimamanna og varði eins og berserkur. Í mörgum tilvikum varði hann nokkur skot í röð í sömu sókn og fjölmörg hraðaupphlaup Valsmanna fóru í súginn þar sem Aron lokaði hreinlega markinu.

Næsti leikur Haukastrákanna er á sunnudaginn á útivelli gegn Gróttu. Hér að neðan má sjá myndir úr leiknum sem Pétur Haraldsson tók.





































































































 
Borði


Molar

Meistaraflokkslið Hauka í handbolta varð Íslandsmeistari á fjórða íslandsmótinu í handknattleik árið 1943, og urðu þar með fyrsta hafnfirska félagið til að verða Íslandsmeistari í flokkaíþrótt.