Aðalfundur handknattleiksdeildar Hauka fer fram þriðjudaginn 9. febrúar kl. 20:30 á annarri hæð á Ásvöllum. Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf. Allir velkomnir!
Haukastúlkur urðu Íslandsmeistarar í handbolta í fyrsta sinn árið 1945. Í meistaraliðinu voru þær Svava Júlíusdóttir, Guðbjörg Magnúsdóttir, Soffía Júlíusdóttir, Guðný Guðbergsdóttir, Sigurlaug Arnórsdóttir og Kristín Þorvarðardóttir. (heimild Haukar 60. ára, bls. 50) |