Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Handknattleiksdeild Haukastelpur náðum fram hefndum

Haukastelpur náðum fram hefndum

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Ramune skorar eitt af sjö mörkum sínumHaukastelpur mættu gríðarlega einbeittar til leiks þegar Stjörnustúlkur komu í heimsókn á Ásvelli á laugardaginn. Þær voru augljóslega staðráðnar í að ná fram hefndum eftir naumt tap í Garðabænum í bikarnum fyrr í vikunni. Þétt vörn og góð markvarsla lögðu grunninn að öruggum sigri sem var síst of stór, 26-22, en Haukastelpurnar leiddu um tíma með tíu mörkum í seinni hálfleik. Ramune og Hanna Stefáns voru atkvæðamestar í liði Hauka og skoruðu sjö mörk hvor. Bryndís Jónsdóttir var samt maður leiksins enda fór hún mikinn á milli stanganna. Haukastelpurnar eru sem fyrr í fjórða sæti N1 deildarinnar með 18 stig eftir  14 leiki. Með því að velja "Lesa meira" er hægt að skoða myndir úr leiknum sem Pétur Haraldsson tók.




























































































































































 
Borði


Molar

Haukar voru stofnaðir 12. apríl 1931.