Handboltaveisla í kvöld

Það verður heljarinnar handboltaVEISLA í kvöld.

Stuðið byrjar á okkar heimavelli í Schenker Höllinni að Ásvöllum þegar Haukastrákarnir taka á móti liði ÍBV kl. 18:15. Með sigri fara okkar drengir áfram í úrslitin.

Andlitsmálning, grillaðir hamborgarar+pylsur gegn vægu verði, ljósashow, tryllt tónlist, trylltur handboltaleikur.

Kl. 20:00 eiga stelpurnar leik við Stjörnuna. Staðan í einvíginu er 2-1 Haukastelpum í vil. Það er því gríðarlega mikilvægt að ná fram sigri í Mýrinni og tryggja sér miða í úrslitin. Rútur fara frá Ásvöllum eftir leik strákanna svo það er öllum fært að komast í Mýrina og hvetja stelpurnar til sigurs.

Nú mæta ALLIR og styðja okkar fólk til sigurs.

 

hau-ibv 3stja-hau 4