Guðmundur Árni Ólafsson kominn aftur í Hauka

Landsliðsmaðurinn Guðmundur Árni Ólafsson er kominn aftur til Hauka og mun spila með liðinu í vetur. Hann skrifaði undir eins árs samning við félagið.

Guðmundur Árni þekkir vel til hjá Haukum en hann lék með liðinu á árunum 2009-11. Guðmundur varð þrefaldur meistari með Haukum tímabilið 2009-10. Hann hefur leikið í Danmörku frá 2011, fyrst með Bjerringbro/Silkeborg og svo með Mors-Thy.

Við bjóðum Guðmund Árna velkominn aftur í Hauka!