Gríðarlega mikilvægur leikur hjá strákunum í Dominos deildinni á föstudag

haukar5Haukar fá Þór Akureyri í heimsókna í Schenkerhöllina föstudaginn 3. febrúar í gríðarlega mikilvægum leik í Dominos deild karla. Hefst leikurinn kl. 19:15 og fyrir leik verða grillaðir hamborgarar og því hvetjum við fólk til að mæta snemma og hita vel upp fyrir þennan stóra leik.

Haukaliðið hefur ekki sýnt sitt rétta andlit í janúar, eins og síðustu ár, en febrúar hefur gefið vel síðustu ár og hefur liðið ekki tapað leik i febrúar síðustu þrjú ár. Strákarnir eru staðráðnir í því að komast á sigurbraut og halda í hefðina.

Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir Haukaliði, sem situr í fallsæti í deildinni og þurfa því nauðsynlega á sigri að halda. Stutt er þó í næstu lið en ljóst að liðið þarf að fara að sýna sitt rétta andlit og ná fram hagstæðum úrslitum.

Nú þarf allt Haukafólk að mæta og hvetja strákana til sigurs. Liðið þarf öflugan stuðning og því hvetjum við fólk til að mæta.