Glæsilegt afmælisboð

afmælishátið (800x600) (2)Þær voru ekki skornar við nögl veitingarnar í 25 ára afmælifagnaði  Öldungaráðs Hauka á sunnudaginn. Saman voru komnir margir af stofnendun Öldungaráðsins auk annarra gesta. Jóhanna formaður ráðsins  færði félaginu  álitlega peningagjöf, 10 þúsund krónur  fyrir hvert ár.

Formaður félagsins, Samúel Guðmundsson, flutti stutt ávarp og afhjúpaði afmælisskjöld tileinkaðan Öldungaráðinu sem nú prýðir Forsalinn.
Þá flutti Lúðvík Geirsson skemmtilegt erindi um upphaf og sögu Öldungaráðsins í 25 ár. Það voru ánægðir og mettir Haukafélagar sem yfirgáfu Ásvelli síðla á sunnudaginn undir ljúfri tónlist frá Svenna nikkara. – Kærar þakkir.

oldungarad3 (450x800)

 

oldungarad2 (800x450)oldungarad4oldungarad