Getraunaleikur Hauka 1×2

Bikarkeppnin –  13 réttir

Nú er lokið Getraunaleik Hauka. 30 umferðir hafa verið spilaðar í vetur og verða úrslit í keppninni opinberuð á laugardaginn í athöfn sem hefst kl 11 í  Stefánsstofu á 2. hæð.

Þá er og lokið Bikarkeppninni  en þar háðu 3 lið harða keppni í lokaumferð,  Jambó, Everton og DÍS. Upplýst skal að sigurvegari í þeirri keppni náði 13 réttum eða fullu húsi.

Glæsileg verðlaun verða afhent og boðið verður upp á veitingar.