Fyrsti leikur í úrslitum Dominos deildar kvenna sumardaginn fyrsta kl. 19:15

Haukar spila á móti Val í úrslitum Dominos deildar kvenna og hefst rimma þessara liða á sumardaginn fyrsta kl. 19:15 í Schenkerhöllinni.

Það lið sem fyrr vinnur 3 leiki tryggir sér Íslandsmeistaratitilinn og deildarmeistarar Hauka eiga heimaleikjarétt. Bæði lið hafa spilað mjög vel í vetur og voru í sætum 1 og 2 í deildinni í vetur. Haukar slóu Skallagrím út 3-0, en Valur sló Íslands- og bikarmeistara Keflavíkur út 3-1. Bæði lið sýndu í undanúrslitum að þau væru tilbúin í úrslitin og má búast við skemmtilegum og jöfnum leikjum hjá þessum liðum.

Við hvetjum alla Hafnfirðinga og Haukafólk til að fjölmenna i Schenkherhöllina og styðja stelpurnar í baráttunni um titilinn og hjálpa liðinu að landa þeim stóra.