Fréttatilkynning frá handknattleiksdeild Hauka

Fréttatilkynning frá handknattleiksdeild Hauka

Samkomulag hefur náðst milli handknattleiksdeildar Hauka og Aalborg Handball
um að Janus Daði Smárason leikmaður Hauka gangi til liðs við Aalborg hb
nú í lok janúar, en eins og kunnugt er hafði  Janus gert samning við Aalborg hb um að leika með liðinu frá og með næsta tímabili.
Ósk þess efnis barst Haukum frá Aalborg hb og Janusi Daða á þriðjudagsmorgun og hefur verið gengið frá samkomulagi milli aðila um að leysa Janus Daða undan samningi við Hauka fyrir lok janúar.
Haukar sjá á eftir góðum liðsmanni og félaga og óska honum alls hins besta á nýjum vígstöðvum.