Fréttatilkynning frá Handknattleiksdeild Hauka – Ramune til liðs við Hauka á ný

Þorgeir Haraldsson og Ramune Pekarskyte. Mynd: Haukar – Frjáls til afnota.

Handknattleikskonan öfluga Ramune Pekarskyte hefur ákveðið að leika með Haukum á komandi leiktið.  Ramune hefur þegar hafið æfingar með öflugu liði Hauka sem ætla sér stóra hluti á komandi vetri.

Ramune sem kemur til liðs við Hauka frá Stjörnunni þarf ekki að kynna fyrir Haukafólki en hún lék með liðinu við góðan orðstýr frá 2003 til 2010 og svo aftur frá 2015 til 2017. Á þessum tíma var hún lykilleikmaður í Haukaliðinu en hún hefur unnið alla þá titla sem hægt er að vinna á Íslandi með Haukaliðinu. Handknattleiksdeildin býður Ramune velkomna aftur í Hauka og hlakka til að sjá hana á gólfinu á komandi tímabili.