Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Knattspyrnudeild
Fréttir frá knattspyrnudeild Hauka

Haukar - Grindavík

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÞriðjudaginn 15. júní  kl 19:15 mæta stelpurnar okkar Grindavík í sannkölluðum 6 stiga leik að Ásvöllum. Mætum öll á þennan gríðarlega mikilvæga leik.

Áfram Haukar

 

 

Keflavík-Haukar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar - IBV Á mánudag mætum við toppliði Keflavíkur í Pepsi-deild karla.

Mætum öll á Njarðvíkurvöll og styðjum okkar menn.

Leikurinn hefst kl 19:15.

Áfram Haukar

 

Enn eitt tapið, nú gegn Breiðablik

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Sam Mantom skoraði fyrsta mark Hauka á heimavelli í sumar!Já, fyrsti sigurinn í Pepsi-deild karla ætlar virkilega að láta bíða eftir sér, en hrikalega verður hann sætur þegar hann loks kemur. Í gær tóku Haukar á móti Breiðablik á Vodafone-velli okkar Haukamanna (ásamt Valsmanna).

Í fyrsta sinn í sumar komust Haukar yfir í stöðunni 2-1, með marki frá Arnari Bergmanni Gunnlaugssyni úr víti, en áður hafði Sam Mantom jafnað metin með fyrsta marki Hauka á heimavelli í sumar og það með skalla. Staðan í hálfleik 2-1 Haukum í vil. En þá sögðu Breiðablik ,,Hingað og ekki lengra" og gáfu í, í seinni hálfleik og sigruðu síðari hálfleikinn 3-0 og leikinn samanlagt 4-2.

Lesa meira...
 

Afturelding - Haukar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÞriðjudaginn 8. júní mæta stelpurnar okkar í Mosfellsbæinn. Gríðarlega mikilvægur leikur. Mætum öll og styðjum þær. Leikurinn hefst kl. 19:15.

ÁFRAM HAUKAR!!!!!! 

 

Haukar - Breiðablik á morgun

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Ásgeir Þór er orðinn heill og verður líklega í hóp á morgunÁ morgun mætast Haukar og Breiðablik á heimavelli okkar á Vodafone-vellinum við Hlíðarenda. Leikurinn hefst klukkan 19:15.

Þetta verður án efa hörkuleikur, Breiðblik eru í baráttu á toppnum í deildinni en Haukar bíða enn eftir fyrsta sigurleiknum í deildinni og eru orðnir mjög svo hungraðir í hann. 

Bæði lið duttu útúr Visa-bikarnum í vikunni, Haukar töpuðu fyrir Fjölni 2-0 á heimavelli eftir herfilega lélegan leik en Blikar sem eru núverandi bikarmeistarar töpuðu fyrir FH í vítaspyrnukeppni á Kópavogsvelli. 

Lesa meira...
 


Borði


Molar

Í sögu Hafnarfjarðar, sem Sigurður Skúlason, magister skrifaði, og kom út árið 1932, er minnst á öll þau íþróttafélög sem höfðu starfað og voru starfandi í bænum á þeim tíma.  Þar á meðal eru Haukar nefndir til sögunnar sem yngsta íþróttafélagið í bænum.  Fimleikafélag Hafnarfjarðar er ekki nefnt á nafn í þessari samantekt sem vekur upp spurningar hvort Haukar séu ekki í raun réttri elsta starfandi íþróttafélag í Hafnarfirði.