Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Knattspyrnudeild
Fréttir frá knattspyrnudeild Hauka

16 liða úrslit í Visabikarnum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarNæst komandi laugardag kl 14. munu Haukastelpurnar taka á móti Aftureldingu í 16 liða úrslitum Visabikarsins hér að Ásvöllum. Allir að mæta, því um hörkuleik verður að ræða. 

Áfram Haukar!!!!!!! 

 

Sam: Ég mun sakna Íslands

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Sam hefur nú yfirgefið Hauka og snúið aftur til EnglandsSam Mantom hefur nú snúið aftur til síns heimalands og mun byrja að æfa með West Bromwich Albion á ný eftir að hafa dvalið hjá Haukum í tæpa tvo mánuði. Honum tókst að skora tvö mörk á tíma sínum hér, það fyrra með skalla á móti Breiðablik og hitt skoraði hann með hnitmiðuðu skoti í vinstra hornið gegn Keflavík. Við tókum stutt viðtal við hann og þetta hafði hann að segja um þann tíma sem hann eyddi hjá Haukum.

,,Dvöl mín á Íslandi er búin að vera öðruvísi en ég er vanur á Englandi en það var einmitt ástæðan af hverju ég kom til Íslands, fá eitthvað öðruvísi til að láta mig upplifa það að vera einn á báti og upplifa samkeppni. Mér finnst við vera búnir að vera óheppnir í leikjum en kannski var heppnin bara ekki með mér í þetta skiptið. En ég hef virkilega notið mín hérna og ég hef hitt margt skemmtileg fólk, en ég held að allir vilji vera Englendingar," sagði Sam og hló.

Lesa meira...
 

Illa lyktandi tap gegn Grindavík

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Sam Mantom lagði upp mark í kveðjuleik sínum fyrir Hauka.Það voru Haukar sem voru yfir í hálfleik 2-0 gegn Grindavík í kvöld á Vodafone-vellinum, en það voru hinsvegar Grindvíkingar sem fóru með sigur af hólmi eftir 90 mínútna leik, 3-2.

Arnar Gunnlaugsson kom Haukum á bragðið með flottu marki eftir góðan undirbúning frá Sam Mantom sem var að spila sinn síðasta leik fyrir Hauka en hann snýr aftur til Englands eftir mánaðar dvöl hér á landi. Hilmar Geir Eiðsson skoraði síðan annað mark Hauka og þar við sat í hálfleik.

Haukar héldu tveggja marka forystu sinni í korter í seinni hálfleik eða þar til að Orri Freyr Hjaltalín minnkaði muninn, eftir það litu getirnir aldrei til baka og Gilles Mbang Ondo skoraði tvö mörk á eins mínútna milli bili. 

Við leyfum öðrum fjölmiðlum að hafa fleiri orð um þennan leik. Næsti leikur Hauka er á sunnudaginn gegn Fram á Laugardalsvellinum klukkan 16:00.

Lesa meira...
 

Fimm úr Haukum valdir í úrtaksæfingar U17 karla

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarHaukar eiga fimm stráka sem valdir hafa verið til að taka þátt í úrtaksæfingum hjá U17 liðs karla. Þjálfari er Gunnar Guðmundsson.

EFtirtaldir leikmenn hafa verið valdir:

Magnús Gunnarsson markmaður
Gunnar Örvar Stefánsson
Þórður Jón Jóhannesson
Aron J Pétursson
Arnar Aðalgeirsson

 

Æfingar eru sem hér segir:
Lau 26/6 Tungubakkar kl 11:00 - 12:30 (leikmenn tilbúnir kl 10:45)
Sun 27/6 Tungubakkar kl11:00 - 12:30 (leikmenn tilbúnir kl 10:45)

Við óskum strákunum til hamingju og óskum þeim góðs gengis.

 

 

 

 

 

 

 

Haukar - Grindavík

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar - IBV  by tomasz.kolodziejski.Mánudaginn 21. júní verður sannkallaður sex stiga leikur í Pepsideild karla á Vodafonevellinum að Hlíðarenda kl. 20:00 þegar Grindavík kemur í heimsókn.

Mætum öll og hvetjum okkar menn til sigurs. 

Áfram Haukar

 

 

 


Borði


Molar

Í sögu Hafnarfjarðar, sem Sigurður Skúlason, magister skrifaði, og kom út árið 1932, er minnst á öll þau íþróttafélög sem höfðu starfað og voru starfandi í bænum á þeim tíma.  Þar á meðal eru Haukar nefndir til sögunnar sem yngsta íþróttafélagið í bænum.  Fimleikafélag Hafnarfjarðar er ekki nefnt á nafn í þessari samantekt sem vekur upp spurningar hvort Haukar séu ekki í raun réttri elsta starfandi íþróttafélag í Hafnarfirði.