Mánudaginn 5. Júlí kl 19:15 tökum við á móti Fylki á Vodafonevelli í Pepsideild karla. Það er mikilvægt að allir mæti og styðji okkar menn því með sigri komumst við úr fallsæti. Markmið sumarsins eru óbreytt, að halda sér uppi. Það eru gríðarlega góð batamerki á leik liðsins og fyrsti sigur okkar í deildinni mun líta dagsins ljós nú á mánudaginn. Mætum öll og styðjum við bakið á strákunum.
Áfram Haukar!!



Knattspyrnudeild


Það voru engin mörk skoruð í leik Hauka og Fram í Pepsi-deild karla sem fram fór á Laugardalsvellinum í gær. Haukar fengu þar með sitt fjórða stig í deildinni í sumar og öll hafa þau komið á útivelli.
Næstkomandi miðvikudag 30. júní mæta stelpurnar okkar í Kópavoginn og mæta þar Breiðablik kl 19:15. Stelpurnar mæta fullar sjálfstrausts eftir frábæran sigur á Aftrueldingu í bikarkeppninni á laugardaginn síðasta. Nú mætum við öll og styðjum stelpurnar til sigurs. Áfram Haukar









