Það sýndi sig bersýnilega í gærkvöldi að leikurinn er ekki búinn fyrr en dómari leiksins flautar leikinn af, því leik klukkan sýndi 93:34 þegar Kristján Ómar Björnsson skoraði jöfnunarmark Hauka gegn Fylki í 10.umferð Pepsi-deildar karla og þar með fyrsta stig Hauka á heimavelli í sumar, staðreynd.
Daníel Einarsson var í banni hjá Haukaliðinu en sem fyrr vantaði Hilmar Trausta, Garðar og Þórhall Dan sem og Daða Lárusson markvörð en í hans stað stóð Amir Mehica sem með stakri prýði og varði á köflum mjög vel. Í fjarveru Hilmars, Þórhalls og Daða var Arnar Gunnlaugsson því fyrirliði Hauka í leiknum í gærkvöldi og þar með fjórði fyrirliði Hauka í sumar. Hver verður næsti fyrirliðinn?
Fyrri hálfleikurinn var rólegur til að byrja með, en síðan fóru leikar að æsast, Haukar sóttu að marki Fylkis í 10 mínútur en síðasta korterið í fyrri hálfleiknum var hálfgerð eign Fylkismanna. Það lá því mark í loftinu hjá þeim og það kom í byrjun seinni hálfleiks.
Haukar gáfust ekki upp og jöfnuðu metin eins og fyrr segir í uppbótartíma og fimmta jafnteflið á tímabilinu staðreynd. Næsti leikur Hauka er næstkomandi fimmtudag, á Vodafone-velli Valsmanna, þar sem Haukar og Valur mætast en sá leikur er heimaleikur Vals.