Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Knattspyrnudeild
Fréttir frá knattspyrnudeild Hauka

Magnús Björgvinsson í Hauka - Haukar vilja einnig semja við Skotann

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Andri er byrjaður að styrkja hópinn fyrir komandi átök

Haukar hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir seinni umferð Pepsi deildar karla. Magnús Björgvinsson hefur ákveðið að ganga til liðs við Hauka en hann kemur frá Stjörnunni.

Magnús hefur ágætis reynslu í Pepsi deildinni en hann spilaði 14 leiki með Stjörnunni í fyrra og skoraði 3 mörk.

Haukar sitja á botni Pepsi deildar karla með 6 stig en eru þó aðeins tveimur stigum frá öruggu sæti í deildinni

Lesa meira...
 

Valur - Haukar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarStórleikur verður að Hlíðarenda í kvöld kl 19:15 þegar Haukastelpur mæta toppliði Vals. Nú er um að gera að mæta og styðja stelpurnar til dáða. Allir að mæta.

Áfram Haukar!!!!!

 

Haukar gerðu jafntefli við Val

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÞað voru 1027 manns sem fylgdust með er Haukar og Valur mættust á Vodafone-vellinum en í þetta skiptið voru Haukamenn á útivelli. Haukar léku því í bláu og byrjuðu betur því Guðjón Pétur Lýðsson átti fyrsta skot leiksins eftir tíu mínútna leik sem fór rétt framhjá.

Það var svo á 25. mínútu þar sem Haukar komust yfir með marki frá Hilmari Geir Eiðssyni eftir frábæra sendingu frá fyrirliðanum Arnari Gunnlaugssyni. Eftir það lágu Haukar aftar á vellinum og Valur sótti meira á þá. Valsarar uppskáru svo mark rétt fyrir hálfleik en þar var að verki Ian Jeffs.

Lesa meira...
 

Visabikar kvenna 8 liða úrslit

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarFöstudaginn 9. júlí munu Haukastelpur leika gegn ÍBV í Eyjum í 8 liða úrslitum Visabikarsins. Leikurinn hefst kl 16:00. Áfram Haukar!!!!!

 

Sjósund undir - myndir

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Sjórinn heillar ekki alla - spurning hvort að Hilmar sé að flýja kuldann Eins og var greint frá á heimasíðunni er mikið undir fyrir leik kvöldsins. Strákarnir eru að eltast við sinn fyrsta sigur og þ.a.l. þrjú stig. En einnig eru þeir að reyna komast hjá því að skella sér í eitt stykki sjósund.

En ef þeir vinna í kvöld sleppa þeir við það - en ef það gerist ekki býður þeim ískaldurinn sjórinn.

Í fyrra skellti liðið sér í sjósund og er hægt að sjá myndir frá því með að smella á meira.

Lesa meira...
 


Borði


Molar

Haukastúlkur urðu Íslandsmeistarar í handbolta í fyrsta sinn árið 1945.  Í meistaraliðinu voru þær Svava Júlíusdóttir, Guðbjörg Magnúsdóttir, Soffía Júlíusdóttir, Guðný Guðbergsdóttir, Sigurlaug Arnórsdóttir og Kristín Þorvarðardóttir. (heimild Haukar 60. ára, bls. 50)