Í dag skrifaði Spánverjinn, Alexandre Garcia Canedo undir samning við Hauka sem gildir út tímabilið.
Alexandre er því þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við Hauka í félagsskiptaglugganum sem opnaðist 15.júlí.
Hann er 24 ára gamall og var síðast samningsbundinn Barcelona en var leystur undan samning árið 2006.
Síðan þá hefur hann spilað áhugamannabolta og stundað nám í Bandaríkjunum.
Hann spilar framarlega á vellinum og er með gott markanef og hefur hann kennt Lionel Messi góð ráð en þeir spiluðu saman með yngri liðum Barcelona hér áður fyrr.



Knattspyrnudeild


Enn eitt jafnteflið í sumar hjá Haukaliðinu og það annað gegn KR varð staðreynd í gærkvöldi þegar Valgeir Valgeirsson umdeildur dómari leiksins flautaði af leikinn á Vodafone-vellinum í gær. Bæði lið skoruðu þrjú mörk í leiknum.
Þriðjudaginn 20. júlí taka stelpurnar okkar á móti Fylki í Pepsideild kvenna kl 19:15 að Ásvöllum. Gríðarlega mikilvægur leikur og nú mæta allir á völlinn og hvetjum þær áfram. Áfram Haukar
Eins og greint var frá á
Í hádeginu í dag skrifaði Jamie Mcunnie undir samning við Hauka og verður því gjaldgengur í næsta leik liðsins gegn KR næstkomandi sunnudag á Vodfonevellinum. Samningurinn við Jamie gildir út þetta tímabil.









