
Viltu komast frítt á alla knattspyrnuleiki á Íslandi?
Viltu komast frítt á alla knattspyrnuleikina í sumar? Dómaranámskeið KSÍ verður haldið á Ásvöllum mánudaginn 6. maí kl. 18:00. Námskeiðið er fyrir þá sem ekki hafa setið það áður og tekur um 2 klst og lýkur með stuttu skriflegu prófi. Þeir sem standast prófið fá að launum Dómararskírteini KSÍ sem veitir aðgang að öllum leikjum KSÍ á þessu ári. Lágmarksaldur er 14 ár. Skráðu þig með því að senda tölvupóst til Kristjáns Ómars: mannsraekt@gmail.com.
6 dagar í mót - Ásgeir Þór Ingólfsson
Ásgeir Þór Ingólfsson er einn af fjölmörgu uppöldnu leikmönnum meistaraflokks karla í knattspyrnu. Ásgeir hefur verið einn öflugasti sóknar- og miðjumaður Hauka undanfarin ár, hann gekk til liðs við Vals fyrir síðasta tímabil. Hann ákvað hinsvegar að taka slaginn að nýju með Haukum og gera allt í hans valdi til að koma liðinu í þá deild, sem það á heima. Nú styttist í að 1.deildin hefjist en fyrsti leikur Hauka í 1.deildinni er gegn Þrótti R. á útivelli. Eftir 6 daga, fimmtudaginn 9.maí. Fjórum dögum seinna mætir síðan Haukar, Víking Reykjavík í Borgunar-bikar karla. Fyrsti heimaleikur Hauka er gegn Grindavík sem féllu úr Pepsi-deildinni, en sá leikur er föstudaginn 17.maí. Haukar.is heldur áfram að telja niður í fyrsta leik og í dag svarar Ásgeir Þór nokkrum spurningum, um veturinn sem senn fer að ljúka og um komandi tímabil. Hafsteinn Briem í Hauka
Varnar- og miðjumaðurinn, Hafsteinn Briem er genginn til liðs við Hauka frá Val. Hafsteinn hefur undanfarnar vikur æft og spilað æfingaleiki með Haukum og hefur nú fengið félagaskipti í Hauka. Hafsteinn er uppalinn í HK en hann gekk til liðs við Vals í fyrra. Hann lék aðalega sem miðjumaður hjá HK og Val en er ætlaður bæði sem miðvörður og miðjumaður hjá Haukum. Hafsteinn er annar miðjumaðurinn sem gengur til liðs við Hauka á stuttum tíma því Andri Steinn Birgisson gekk nýlega til liðs við Hauka. 9 dagar í mót - Viktor Smári Hafsteinsson
Varnarmaðurinn nautsterki, Viktor Smári Hafsteinsson er einn af nýliðunum í meistaraflokks karla í knattspyrnu. Viktor kemur til Hauka að láni frá Keflavík þar sem hann hefur fengið nokkur tækifæri síðustu tvö sumur. Það sem kannski fáir vita er það, að Viktor lærði að sparka í bolta í fyrsta sinn í Haukum en í kringum táningsaldurinn flutti hann ásamt fjölskyldu til Keflavíkur og hefur verið þar síðan. Það mætti því segja að Viktor sé að koma heim, í Haukana eins og svo fjölmargir leikmenn fyrir þetta tímabil. Það styttist í að 1.deildin hefjist en fyrsti leikur Hauka í 1.deildinni er gegn Þrótti R. á útivelli. Eftir 9 daga, fimmtudaginn 9.maí. Fjórum dögum seinna mætir síðan Haukar, Víking Reykjavík í Borgunar-bikar karla. Fyrsti heimaleikur Hauka er gegn Grindavík sem féllu úr Pepsi-deildinni, en sá leikur er föstudaginn 17.maí Haukar.is heldur áfram að telja niður í fyrsta leik og í dag svarar Viktor Smári nokkrum spurningum, um veturinn sem senn fer að ljúka og um komandi tímabil. Einnig spyrjum við hann að því hvernig honum hefur líkað í Haukum. 11 dagar í mót - Hilmar Geir Eiðsson
Hilmar Geir Eiðsson er einn af fjölmörgu uppöldnu leikmönnum meistaraflokks karla í knattspyrnu. Hilmar hefur undanfarin tvö ár leikið með Keflavík í Pepsi-deild karla en þar á undan hefur hann allan sína tíð spilað með Haukum. Nú styttist í að 1.deildin hefjist en fyrsti leikur Hauka í 1.deildinni er gegn Þrótti R. á útivelli. Eftir 11 daga, fimmtudaginn 9.maí. Fjórum dögum seinna mætir síðan Haukar, Víking Reykjavík í Borgunar-bikar karla. Fyrsti heimaleikur Hauka er gegn Grindavík sem féllu úr Pepsi-deildinni, en sá leikur er föstudaginn 17.maí Haukar.is heldur áfram að telja niður í fyrsta leik og í dag svarar Hilmar Geir nokkrum spurningum, um veturinn sem senn fer að ljúka og um komandi tímabil. |
|
Fleiri greinar...
|
|
|
| Haukar voru stofnaðir 12. apríl 1931. |