Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Knattspyrnudeild
Fréttir frá knattspyrnudeild Hauka

Úlfar Hrafn kominn heim

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Úlfar Hrafn Pálsson hefur skrifað undir lánssamning þess efnis að hann spilar með Haukum í 1.deildinni í sumar. Hann kemur til Hauka frá Val.

Úlfar þekkir vel til í Haukum, enda hefur hann spilað allan sinn ferill með Haukum fyrir utan síðasta ár, er hann lék með Val í Pepsi-deild karla. Úlfar er 24 ára örvfættur og getur bæði leikið í stöðu bakvarðar og á kanti.

Hann hefur á sínum ferli spilað 117 meistaraflokksleiki, þar af 103 með Haukum og skorað 15 mörk. Í fyrra spilaði hann 13 leiki með Val í Pepsi-deild karla. 

Úlfar er frábær viðbót við gífurlega sterkan leikmannahóp Hauka í 1.deildinni. Hann verður í löglegur með Haukum í leiknum á morgun, en þá mæta Víking í bikarkeppni KSÍ. Sá leikur hefst klukkan 19:00 og fer fram á Víkingsvelli.

Lesa meira...
 

Bikarleikur í Víkinni á mánudaginn

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Á mánudagskvöldið heimsækir Haukar, lið Víkings Reykjavíkur í Borgunarbikar karla. Flautað verður til leiks klukkan 19:00 og ekki búist við öðru en hörkuleik hjá tveimur mjög svo frambærilegum liðum sem bæði leika í 1.deildinni.

Bæði lið hófu mótið með sigri á útivelli með sömu markatölu. Haukar unnu 2-1 útisigur gegn Þrótti á fimmtudaginn og á sama tíma unnu Víkingar, Grindvíkinga 2-1 í Grindavík.

Lesa meira...
 

Ásgeir Þór bestur í 1.umferð 1.deildar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Fyrsta umferðin í 1.deild karla fór fram á fimmtudaginn síðastliðinn. Haukar sigruðu Þrótt á útivelli, 2-1 með mörkum frá Ásgeiri Þór Ingólfssyni og Hafsteini Briem.

Besta knattspyrnusíða landsins, Fótbolti.net velur eftir hverja umferð, lið umferðarinnar og besta mann umferðarinnar í 1.deild karla. Í 1.umferðinni eru þrír Haukamenn í liði umferðarinnar og auk þess var Ásgeir Þór Ingólfsson valinn besti leikmaður umferðarinnar.

Í liði umferðarinnar auk Ásgeirs, voru Haukamennirnir Hilmar Trausti Arnarsson fyrirliði Hauka og Hafsteinn Briem.

Lesa meira...
 

Sigur í fyrsta leik - Hvað segir Hafsteinn Briem?

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Fyrsti leikur Hauka í 1.deildinni fór fram í gærdag. 2-1 útisigur gegn Þrótti, með mörkum frá Ásgeiri Þór Ingólfssyni og Hafsteini Briem varð staðreynd og því byrjar liðin á góðum nótum. 

Mikið púður hefur verið lagt í liðið í vetur og leikmenn hafa undirbúið sig vel fyrir komandi tímabil. Baráttan í 1.deildinni verður mikil og hart barist í hverjum einasta leik. Einn af nýliðunum í liðinu, Hafsteinn Briem spilaði sinn fyrsta mótsleik með Haukum í gær. 

Við fengum hann til að svara nokkrum spurningum, út í leikinn og veruna í Haukum.

Lesa meira...
 

Haukasigur í fyrsta leik

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Haukar fóru heim með öll þrjú stigin sem í boði voru í Laugardalnum í dag. Haukar heimsóttu Þróttara heim í fyrstu umferð 1.deildar karla í dag. Það var ágætlega vel mætt á leikinn og ágætis fótboltaveður sem leikmenn beggja liða nýttu sér vel og sýndu lipra takta lungan úr leiknum.

Tvö mörk á tveimur mínútum frá Haukum gerði útslagið í leiknum, en Þróttarar minnkuðu muninn stundar fjórðung fyrir leikslok, en nær komust þeir ekki.

Ásgeir Þór Ingólfsson skoraði fyrsta mark Hauka í 1.deildinni í sumar, skalla mark eftir fyrirgjöf frá fyrirliðanum Hilmari Trausta. Stuttu síðar, átti Ásgeir Þór fyrirgjöf frá svipuðum stað og Hilmar í fyrra markinu, Brynjar Ben. skallaði boltann út í teiginn þar sem Hafsteinn Briem nelgdi boltanum í netmöskvana. Frábært mark frá nýliðanum!

Lesa meira...
 


Borði


Molar

Haukastúlkur urðu Íslandsmeistarar í handbolta í fyrsta sinn árið 1945.  Í meistaraliðinu voru þær Svava Júlíusdóttir, Guðbjörg Magnúsdóttir, Soffía Júlíusdóttir, Guðný Guðbergsdóttir, Sigurlaug Arnórsdóttir og Kristín Þorvarðardóttir. (heimild Haukar 60. ára, bls. 50)

samstarfsadilar

Borði