Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Knattspyrnudeild Viktor Smári í Hauka á láni

Viktor Smári í Hauka á láni

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarHaukar fengu í dag lánaðan, sóknarmanninn Viktor Smára Segatta frá FH. Viktor hefur leikið allan sinn knattspyrnuferil með Fimleikafélaginu en hann gekk uppúr 2.flokki eftir síðasta tímabil. 

Viktor varð Íslandsmeistari með 2.flokki FH í fyrra en þar skoraði hann 17 mörk í 17 leikum.  Hann hefur æft með Haukum síðustu daga og í dag var síðan gengið frá lánssamningi á milli FH og Hauka.

 

Hann er nú þegar kominn með leikheimild og ætti því að geta verið í leikmannahóp Hauka á laugardaginn þegar Haukar mæta Tindastól í fyrstu umferð 1.deildar karla á Schenkervellinum að Ásvöllum.

 

Frítt er á leikinn í boði Rio Tinto Alcan - ALLIR Á VÖLLINN! 

 
Borði


Molar

19. janúar 1938 var kvennaflokkur Hauka stofnaður af 41 stúlku.  Kvennadeildin var fjörefni félagsins á þeim tíma og héldu stúlkurnar merki Hauka hátt á lofti. (Heimild: Haukar í 60 ár, bls. 21-22)

samstarfsadilar

Borði