Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Knattspyrnudeild Annað pílukvöld Hauka á föstudaginn

Annað pílukvöld Hauka á föstudaginn

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarAnnað pílukvöld Hauka verður haldið á Ásvöllum næstkomandi föstudag.

Um er að ræða fjáröflun fyrir meistaraflokk karla í knattspyrnu en þeir halda til Portúgals í apríl og klára undirbúningin fyrir Pepsi-deildina.

Dagskráin hefst klukkan 20:00 og er aðgangseyri 3000 krónur og innifalið í því er þrír ískaldir sem og tveir píluleikir.

Aldurstakmarkið er 18 ára og er öllum Haukurum bæði karlar sem og konur endilega hvattir til að mæta.

Fyrsta pílukvöld Hauka fór vel fram og stefnt er að hafa þetta ennþá betra. En stefnt er að því að þetta verði fastur liður í vetur.

Að sjálfsögðu verður svo ískaldur til sölu allt kvöldið fyrir þá sem eru þyrstari en aðrir.

Pílum á föstudaginn og höfum ánægjulegt Haukakvöld og styrkjum meistaraflokk karla í leiðinni.

 
Borði


Molar

Á félagsfundi í Haukum i ársbyrjun 1932 var samþykkt að félagið óskaði eftir aðild að ÍSI.  Félagið var skömmu síðar samþykkt sem fullgildur aðili að ÍSÍ.  (Heimild: Haukar í 60 ár, bls. 7)