Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Knattspyrnudeild Æfingaleikur gegn Breiðablik

Æfingaleikur gegn Breiðablik

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Hilmar Emilsson skoraði gegn FHMeistaraflokkur karla leikur enn einn æfingaleikinn annað kvöld, nánar tiltekið klukkan 18. Leikurinn verður spilaður í Kórnum og spila strákarnir við Breiðablik.

Þetta er þriðji æfingaleikur liðsins á 10 dögum. Liðið hefur litið vel út eftir því sem líður á og voru grannar okkar í FH stálheppnir að ná jafntefli við liðið á laugardaginn en sá leikur endaði 2-2.

 Hilmar Geir Eiðsson og Hilmar Emilsson skoruðu mörk Hauka í leiknum en Arnar Gunnlaugsson komst ekki á blað í þeim leik en hann hefur verið iðinn við kolann nú á undirbúningstímabilinu.

 Flest allir lykilmenn liðsins eru heilir en Guðjón Lýðsson er eins og flestir vita út í Danmörku þar sem hann æfir með Brabrand. Úlfar Pálsson, Jónmundur Grétarsson og Enok Eiðsson eru allir tæpir en annars eru allir heilir.

Við hvetjum alla til að mæta og horfa á strákana gegn bikarmeisturunum í Breiðablik. Áfram Haukar! 

 
Borði


Molar

Haukastúlkur urðu Íslandsmeistarar í handbolta í fyrsta sinn árið 1945.  Í meistaraliðinu voru þær Svava Júlíusdóttir, Guðbjörg Magnúsdóttir, Soffía Júlíusdóttir, Guðný Guðbergsdóttir, Sigurlaug Arnórsdóttir og Kristín Þorvarðardóttir. (heimild Haukar 60. ára, bls. 50)