Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Knattspyrnudeild
Fréttir frá knattspyrnudeild Hauka

Sigur á heimavelli gegn KA

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Haukar báru sigur úr bítum gegn KA á Ásvöllum í gærkvöldi, 4-2 eftir að hafa verið marki undir í hálfeik 0-1. Haukarnir mættu hinsvegar grimmir til leiks í seinni hálfleik og breyttu gangi leiksins og uppskáru fjögur mörk. Fjórði sigurleikur Hauka á tímabilinu og 2.sætið er Haukana í bili.

Mörk Hauka skoruðu þeir, Andri Steinn Birgisson, Hilmar Trausti Arnarsson og Hafsteinn Briem tvö. Mörk KA skoruðu Haukarnir, Hafþór Þrastarson og Hilmar Trausti Arnarsson.

Næstu tveir leikir Hauka eru á útivelli, fyrst gegn Víking R. 22.júní og síðan gegn Leikni R. 27.júní. Tveir gríðarlega erfiðir og mikilvægir útileikir framundan.

Lesa meira...
 
aobjecta

Haukar-Þróttur í kvöld

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÍ kvöld fer fram stórleikur í 16-liða úrslitum bikarkeppni kvenna í knattspyrnu þegar Haukastelpur taka á móti Þrótt. Haukar leika sem kunnugt er í 1.deild en Þróttarar spila í úrvalsdeild og er því óhætt að fullyrða að framundan sé erfiður leikur fyrir Haukaliðið en á góðum degi getur liðið svo sannarlega unnið Þrótt.

Leikur stelpnanna hefst kl.19:15 og fer fram hér á Schenkervellinum á Ásvöllum. Aðgangur er ókeypis.

 

 

Jafnt á Ólafsfirði - KA í heimsókn á föstudag

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarKF, Knattspyrnufélag Fjallabyggðar og Haukar skyldu jöfn í gær, 1-1 í 5.umferð 1.deildar karla. Leikurinn fór fram í blíðskaparveðri í Ólafsfirði. 

Staðan var markalaus í hálfleik en Haukaliðið hefði hæglega getað verið einu til tveimur mörkum yfir í hálfleik en til að mynda átti Hilmar Rafn Emilsson skalla í tréverkið eftir fyrirgjöf frá Hilmari Trausta. Það voru hinsvegar heimamenn sem komust yfir með marki frá Jóni Björgvini Kristjánssyni eftir um klukkutíma leik.

Úlfar Hrafn Pálsson jafnaði hinsvegar metin nokkrum mínútum síðar, með laglegu marki. Fleiri urðu mörkin ekki í leiknum. Meira jafnræði var með liðunum í seinni hálfleik. KF liðið sem eru nýliðar í deildinni hafa sýnt það í byrjun móts að þeir eru sýnd veiði en ekki gefin.

Næsti leikur Hauka er næstkomandi föstudag á Ásvöllum. Þá koma lærisveinar Bjarna Jóhannssonar í KA í heimsókn. Hefst leikurinn klukkan 19:15.

 

Lesa meira...
 

Hvað segir Andri Steinn Birgisson?

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Miðjumaðurinn nautsterki, Andri Steinn Birgisson sem gekk til liðs við Hauka fyrr á þessu ári lék sínu fyrstu mínútur fyrir Hauka í 1.deildinni, í 1-0 sigurleiknum gegn Fjölni í síðustu umferð. 

Hann hefur verið að glíma við meiðsli undanfarnar vikur en virðist nú vera búinn að finna leið í gegnum þau, með hjálp Rúnars Pálmarssonar sjúkraþjálfara Hauka og  eins besta sjúkraþjálfara landsins.

Við fengum Andri Stein til að svara nokkrum spurningum fyrir lesendur Haukar.is. Næsti leikur Hauka er á Ólafsfirði á laugardaginn gegn KF. Hefst sá leikur klukkan 16:00. Næsti heimaleikur Hauka er gegn KA 14. júní klukkan 19:15.

Lesa meira...
 

Íslandsmótið byrjar vel hjá Haukastelpum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarKvennalið Hauka í knattspyrnu fer vel af stað þetta sumarið. Liðið hefur unnið fyrstu tvo leiki sína í Íslandsmótinu. Fyrst unnu þær Fram 2-1 á Schenkervellinum og síðast liðin sunnudag héldu þær til Ísafjarðar þar sem þær náðu sér í góð þrjú stig með 2-0 sigri á BÍ/Bolungarvík.

Lesa meira...
 


Borði


Molar

Haukastúlkur urðu Íslandsmeistarar í handbolta í fyrsta sinn árið 1945.  Í meistaraliðinu voru þær Svava Júlíusdóttir, Guðbjörg Magnúsdóttir, Soffía Júlíusdóttir, Guðný Guðbergsdóttir, Sigurlaug Arnórsdóttir og Kristín Þorvarðardóttir. (heimild Haukar 60. ára, bls. 50)

samstarfsadilar

Borði